Einn góður

 ædi
Tvær konur eru að bíða á biðstofunni við Gullna hliðið og eru að bera saman
sögurnar af því hvernig þær dóu. Sú fyrri segir: "Ég fraus  til bana."
  "En hræðilegt," segir hin, "að frjósa til bana. Það hlýtur að hafa  verið
kvalarfullt?"
  "Ekkert svo," segir sú fyrri, "þegar maður er hættur að skjálfa af  kulda
verður maður bara syfjaður og finnur fyrir hlýju. Loks dettur maður  bara
út. Hvað með þig? Hvað gerðist?"
  "Ég fékk hjartaáfall. Mig var búið að gruna manninn minn lengi um
framhjáhald og ákvað að koma snemma heim úr vinnunni einn daginn. En  þegar
ég kom heim, sat hann bara inni í stofu og horfði á  sjónvarpið."
  "Nú?" spyr sú fyrri. "En hvað gerðist?"
  "Ég var alveg viss um að það væri önnur kona í húsinu, svo ég  hljóp  um
allt að leita. Upp á háaloft, niður í kjallara, gáði inni í alla  skápa og
undir öll rúm. Ég hélt þessu áfram þar til ég var búin  að  kemba allt
húsið. Þegar því var lokið var ég svo örmagna að ég  hné  niður, fékk
hjartaáfall og dó."
  "Hmm," segir sú fyrri, "leitt að þú skyldir ekki kíkja í  frystikistuna.
Þá værum við báðar á lífi."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband