Færsluflokkur: Bloggar

Hamfarasýking?? Eða kálhaus?

istockphoto_1032899_carrot_cartoon

Í kaupfélagi Hver-gerð-Inga fréttist inni í grænmetisdeild að Yfir-laumu-Snigill sé á batavegi. Gulrótin játaði sig sigraða og skaust-( skeit??) eins og raketta á brott að eigin sögn. Ekki er vitað hvora leiðina.

Carrot

Grænmeti?

Yfir-laumu-snigill liggur alvarlega veikur eftir grænmetisát. Heyrst hefur að gulrót nokkur hafi algjörlega þvertekið fyrir að láta melta sig og verið með uppsteit á báðum vígstöðvum og í einni vígtönn. Liggja þá tamningar algjörlega niðri í Víðidalnum á meðan gulrótin er að mótmæla. Ekki hefur náðst í ótemjurnar sökum anna.
istockphoto_4780891_set_of_vector_cartoon_horses

FUNDUR Í FÉLAGINU

 

c_users_asdis_pictures_cid_02a901c81ccd_d1b6a320_4001a8c0_d485cr1j

Sælar drykku-Sniglar.

Það hefur komið í ljós, eftir langt og flókið samtal við yfir-laumu-Snigil,að hún man ekkert. Sem getur verið gott ef maður skuldar peninga.En mjög slæmt ef maður á að mæta í Drykkjó hjá Dúnu kl 20:00 á föstudaginn 18 apríl.Og þar hafið þið það.Og í guðana bænum gleymið því ekki útafþví að Gunni er búin að slátra afmælisgrísnum og nætursalta grænmetið og veiða rjómann útá.Á meðan Dúna hefur legið yfir servíettubrotum.Sé ykkur þá.Hills

Sagan um Tótu og Merina

ork1[1]

Ég var svoleiðis um daginn búin að skrifa heila lygasögu um Tótu og merina og… Tvinna samanvið það örótta, snemmtoppandi  stútungssveina…Þegar ég var réttsvo búin að stela myndinni af horsexpo.is….Þá þurkaðist allt út… nema auðvitað myndin sem var tekin með tveimur frjálsum höndumOg einni mús….og einu skjáborði. Allt hitt var bara notað úr heilanum á mér og það átti ég sko allt sjálf.Nema náttúrulega frasar sem ég stal og misnotaði gróflega á alla kanta...hilsLills

Herferð.

Rigningasuddinn slengdist í andlitið á baráttustúlkunum og stóru grimmu hundunum á stjörnubjörtu kvöldinu í dimma þétta skóginum á niðdimma þriðjudagskvöldið þegar þær, dugnaðaforkarnir örkuðu á ógnarhraða eftir stórhættulegum stífluhringnum, innan um allskonar ruslaralýð, hottintotta og stórglæpamenn í þrjá ættliði. Allir þeir sem á vegi þeirra urðu fengu tár í augun vegna gustsins sem myndaðist þegar baráttukvendin geystust fram úr fólki. Straumhörð áin ruddi sér leið niður hrikalega dimmt gilið, og hreif með sér allt sem lauslegt var. Þær létu eins og ekkert væri, enda marga súpuna sopið og etið brauð með. Umræðuefnið voru hrikaleg aukakílóin og stórundarlegt plássleysið í undirfötunum. Þær töluðu og töluðu og fyrr en varir, eins og hendi sé veifað... voru þær villtar. Hundarnir ýlfruðu að hræðslu og stúlkurnar skulfu eins og ný-útsprungnar vorhríslur við undirleik 5 sinfóníunnar eftir Sjúbert. Spennan  og taugatitringurinn minnti helst á viðtalsþáttinn "Maður er nefndur", svo ofboðslegt var þetta. Þær litu flóttalega í kringum sig, trjágrein reif svöðu sár og augað næstum úr Lillu, svo öthuguðu þær hvort GSM-símarnir væru örugglega ekki í vösunum.... Jú.. hjúkk... það væri þá hægt að hringja volandi eftir aðstoð ef illa færi.  Eins og hendi væri veifað, brast á með tunglskyni... og sjá... þar var göngustígurinn. Stúlkurnar rétt fengu 2-3 Camenbert osta, Ritz-kex og rifsberjasultu í sárabætur hjá Yfir-laumu-Snigli til að seðja sárasta hungrið eftir baráttuna við óblíða veðráttuna og hrikaleg náttúruöflin í Árbænum. Þær áhváðu að ferðirnar yrðu fleiri.


Snigl

Afar seint í gærkveldi náðist mynd af Sniglunum þar sem þrír þeirra geystust AGS193áfram á ógnar hraða eftir Stífluhringnum. Kanið á þeim var svo ofboðslegt... að þetta var eiginlega harða-kan. Maður nokkur rölti framúr þeim og við það nánast ruglaðist hárgreiðslan á honum. Ekki hefur verið farið fram á skaðabætur af hvorugu hálfu ef bara allir Sniglarnir lofa að taka sig á í mætingum. Heyrst hefur að aukakílóin séu að setja sig í stellingar og jafnvel í flóttahugleiðingum.


THE BODY GUARD

cruella2

Sko hún Þórunn var svo blönk að hún hafði bara efni á litlum lífverði en stelpurnar voru að tala eitthvað um lítill en flinkur og litlar hendur ... náði því nú ekki alveg en lífvörðurinn virðist mjög samviskusamur þó lítill sé.  Kv Inga

 

 


Crúsidúlla

kvenna4

Tóta verður sett á forsíðu snigla almannaksins þar sem hún eins og dæmin sýna myndast 

alveg sérstaklega vel ,  Hér er mynd af henni (Lauslega stolin) á kvennakvöldi Fáks þar sem hún er í gerfi Cruellu en því miður náðist litli lífvörðurinn ekki með á myndina en kemur vonandi seinna 

Annars er það helst í fréttum að Dúna er alltaf í boltanum, og öllu honum tengdum og að hugsa um strákana í slökkvuliðinu og náttúrulega dekra við Gunna okkar

Inga passar Ármót  og gætir sérstaklega að inniskóm húsbóndans.

Og Ágústa dvelur langtímum í Hvergerðigerði við uppbyggingu , lagfæringar og allskónar dúll

Ester og Tóta eru að reyna að halda merki sniglanna á lofti með því að mæta á sem flesta mannfagnaði  

Kv Inga 

 


Einn góður

 ædi
Tvær konur eru að bíða á biðstofunni við Gullna hliðið og eru að bera saman
sögurnar af því hvernig þær dóu. Sú fyrri segir: "Ég fraus  til bana."
  "En hræðilegt," segir hin, "að frjósa til bana. Það hlýtur að hafa  verið
kvalarfullt?"
  "Ekkert svo," segir sú fyrri, "þegar maður er hættur að skjálfa af  kulda
verður maður bara syfjaður og finnur fyrir hlýju. Loks dettur maður  bara
út. Hvað með þig? Hvað gerðist?"
  "Ég fékk hjartaáfall. Mig var búið að gruna manninn minn lengi um
framhjáhald og ákvað að koma snemma heim úr vinnunni einn daginn. En  þegar
ég kom heim, sat hann bara inni í stofu og horfði á  sjónvarpið."
  "Nú?" spyr sú fyrri. "En hvað gerðist?"
  "Ég var alveg viss um að það væri önnur kona í húsinu, svo ég  hljóp  um
allt að leita. Upp á háaloft, niður í kjallara, gáði inni í alla  skápa og
undir öll rúm. Ég hélt þessu áfram þar til ég var búin  að  kemba allt
húsið. Þegar því var lokið var ég svo örmagna að ég  hné  niður, fékk
hjartaáfall og dó."
  "Hmm," segir sú fyrri, "leitt að þú skyldir ekki kíkja í  frystikistuna.
Þá værum við báðar á lífi."

Guðsótti og góðir inniskór.

Fundist hafa hinir margrómuðu inni/úti/bílskúrs/skór húsbóndans á Ármóti. Munu þeir hafa flúið undir stofuborð nokkuð, þar sem gestir sátu að drykkju langt fram á nótt við mikinn fögnuð viðstaddra. Við fund þennan hefur algjörlega lagst niður ímyndunar og jólagjafagenið í fyrrverandi ástkonu hans. Sem hafði huxað sér gott til glóðarinnar og nota inniskóastuldinn Inniskórnirsem þakklætisvott fyrir að meiga passa Ármót aftur. Mikil og víðtæk leit hefur farið fram. Óðalsbóndinn hafði svoleiðis eytt klukkustundum saman við leit. Og ekkert fundið. Ekki einu sinni á sér. Fyrr en Guðrún nokkur ( ekki sem var drekkt í litlalæknum árið 17 hundruð) gekk upp og leit undir borðið og sagði " SJÁ!!!.... fundið hefi ég inniskó undir borði ". Já, ég hef sagt það áður og segi enn.. dýr yrði ..... allur


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband