KOSNINGA-MATUR MEÐ VÖKU

 >

Upp hafa komið spurningar um

kosningaveizlu-át.

Einbeittur Herbalife söluaðili og undirrituð hafa

komist að svohljóðandi niðurstöðu:

 http://www.ahayball.co.uk/Resources/surfnturf.jpg

 

 

1.       Mætti bjóða ykkur í kosninga átkeppni og drykkju  á ykkar kosnað á laugardaginn klukkan 19:00   í Hördí-Gördí.

2.       Við bara étum drekkum og verum glöð.

3.       Gónum á sjónvarpið.

4.       Ræðum pólitík.

5.       Nörtum í desert.

6.       Lauslega segjum skoðanir okkar á hinum flokkunum

7.       Súpum á rauðvíni og rífumst um pólitík

8.       Drekkum 2faldan gin og tonic og úthúðum helv… fokkings fokkinu hjá “hinum ”.

9.       Drekkum gin af stút og sláumst.

10.   Étum afganginn af desertinum.

11.   Förum á Vog eða til Póllands til Jónínu.

 

Þegar allir  hafa samþykkt að mæta verður áhveðið hvað verður I matinn

 

Eigöst

 

 M a t s e ð i l l 

 

  • Fordrykkur:  Bleikt ský.

  • Forréttur:
  • Haf og hagi.Stolið og stílfært með brauði og brúnu sósunni.
  • Aðalréttur:
  • Mismunandi tegundir af kjöti úr hinu margrómaða kjötborði kjörverzluninnar "Bónus" með nýuppteknum kartöflum frá útlöndum. Framreitt með sérvöldu grænmetissalati og ískaldri megrunarsósu og annari fitandi.
  • Desert:
  • súkkulaði og ávextir í réttu samhengi við alþjóðareglurnar.
  • Ótæpilega drukkið af rauðvíni og hvítvíni með kók-ívafi.


GRAND KVÖLD HJÁ FÁKI :-)

bleikar4.jpgbleikar1.jpgbleikar2.jpgbleikar3_808630.jpgAð sjálfsögðu voru fulltrúar Sniglanna á Kvennakvöldi Fáks , langflottastar

 


ABBA GELLUR

DSC02089

TÆR SNILLD VEGNA ABBAKVENNAKVÖLDS FYLKIS

Sæll eskan mín.

Ég bið hér með um leyfi til að fara á kvennakvöld Fylkis með stúlkunum í drykkjukvennaklúbbnum Sniglarnir.

Þetta er laugardagskveldið 21. Febrúar og hefst kl 19 hundruð.

Ég hefi ekki heyrt annað en að þarna sé siðsemin höfð að leiðarljósi. Hef það frá fyrstu hendi Dúnfríðar.

En þar sem að búningar koma þarna við sögu gæti ég þurft að vera mætt fyrr.

Jafnvel svona um 5 leitið. Ég er samt ekki með mætingatíma á hreinu.

Ég vona að þú sjáir þér fært að veita þetta leyfi þó að þetta sé með stuttum fyrirvara.

Ég myndi algjörlega sjá um að þú ættir hangikjöt I ísskápnum frá nítjánhundruðfjerutíuogfjegur

eða allavegana minna þig á að kaupa það sjálfur og þú gætir hitað upp aleinn um kvöldið.

Ég er búin að taka frá eitt gistipláss hjá Ingiríði eftir þessa skemmtun svo að þú þurfir ekki að sækja

mig  fyrr en þá í fyrsta lagi þegar ég vakna daginn eftir.

Ps. Svo viss var ég um að leyfi fengist  að ég er búin að kaupa miðann.

Þín ástkæra eiginkona.

Eigöst.

 

Kæra Eigöst.

Eiginlega veit ég ekki hvernig eða hvort ég eigi að svara þessari beiðni. Það er jú þannig að svar mitt skiptir í raun engu máli með niðurstöðuna. Hún þ.e. niðurstaðan er jú nú þegar fengin eins og þú tekur fram í niðurlagi erindis þíns.

 Mér er ekki um að það gefið að ganga um of á greiðasemi Ingiríðar með gistiþáttinn. L   Ég þarf að fara á fjörurnar við hana Ingiríði núna í byrjun marsmánaðar en ég þarf að bregða mér af landi brott. Mun dvelja í 2-3 daga í landi þeirra BMW manna. Hefði langað til að þess að pössun væri tryggð svo áhyggjur af reiðileysi þínu myndi eigi íþyngja mér.

 Varðandi áhyggjur þínar af meintum næringarskorti mínum þegar þér nýtur ekki við þá visa ég því á bug .Það er hinsvegar farið að halla mjög undan fæti með næringu þessa dagana. Nauðugur viljugur hef ég þurft að nærast á súpu og grænmeti. Jú ég sagði súpu og græmeti. Það er helst þegar þú ert ekki nærri sem ég get fært þetta í betra horf. Kjöt og kartöflur , sulta og mesta lagi baunir.

 Annars getum væntanlega haft nánara samband vegna þessa máls eftir formlegum leiðum t.d. á MSN eða fjésbókinni í kvöld ef það má trufla við ýsu-drátt framan við 364 rásirnar þínar. Ég verð online uppi í stofu.

 Þinn eiginmaður að eilífu.

 


Sniglabörnin okkar eru sko að standa sig.

screenhunter_09_jan_19_16_27.jpgRóber G.S. Ágústuson var heldur betur að Útskrifast sem Viðskiptafræðimeistari frá Háskólanum í Reykjavík

Til hamingju Elsku Róbert okkar :-)


Nýjar gellur

screenhunter_05_jan_19_15_42.jpgÞessi mynd verður tekin af okkur að átaki loknu, þegar við verðum að flytja til amríku vegna fjölda tilboða frá " You know who "

Það er ennþá möguleiki fyrir ykkur hinar að fá að koma með en það er bara að sækja um aðgang hjá okkur Mjónunum.


Guggan

guggan_013_767575.jpgBara til að vera alveg viss um að allir viti það, þá er Guggan búin að veiða 2 mýs , þrátt fyrir ungan aldur

Moli , var beðin um að aðstoða hana en ruglaðist eitthvað í ríminu og þvoði músargreyjinu milli árasa Guggu sem fannst hún stundum svolítið löt í eltingaleiknum , og ýtti við henni.


Næsta sveinka mætt Stekkur á "staurana"

http://www.faceinhole.com/show.asp?id=73b477d8cb1038167

Okkar jólasveinkur eru alltaf í stuði !! W00t


Gjafmildar og glæsilegar.

Heyrst hefur að þessar ætli að bjarga heiminu... með hinni margrómuðu gjafagleði.

ScreenHunter_14 Dec. 10 15.49ScreenHunter_05 Dec. 10 15.03ScreenHunter_06 Dec. 10 15.11ScreenHunter_07 Dec. 10 15.12ScreenHunter_08 Dec. 10 15.13ScreenHunter_01 Dec. 11 10.05


Fyrsta Jólasveinan Giljar Gaurana

jolasv.jpg

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband