Fyrsta Barnabarnið okkar komið í heiminn

Gvöð og englarnir voru að ræða saman.

"Hvurnig er meðana Ágústínu?" 

"Á hún engin barnabörn?" sagði Gvöð við englana.

"Nei, við höldum að það sé allt ónýtt sem undan henni kemur" sagði englakórinn.

"Nú! sagði Gvöð... ég sé ekki betur en að hann Rögnvaldur hennar sé með barn í maganum".

"Já það, sagði englakórinn"... " Nei hún fékk hann svona". 

""Við vorum fullir og vorum að fíflast jólahlaðborðinu fyrir 15 árum" sagði englakórinn.

"Var ég ekki búin að banna ykkur að leika ykkur með óléttuprikið?"

"Muniði ekki eftir því þegar þið bjugguð til hann Róbertínus?"

"Jú, auðvitað munum við eftir því, það er nú  ekki hægt að gleyma svoleiðis hvirfilvindum" sagði englakórinn.

"Æji, í guðana bænum sendiði henni strákinn sem situr þarna uppi á borði með kórónuna á hausnum".

"Ertu að meina hann Þórbert?" spurði englakórinn.

" Á hann ekki að verða forseti?" spurði englakórinn.

"Jú, auðvitað" sagði Gvöð...

"Verðum við þá ekki að setja í hann gáfurnar hennar Ágústínu" sagði englakórinn.

photo

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband