Vandamálakassinn

Í samtali við Völvuna sagði hún að mikil átök yrðu hjá Sniglunum. Völvan sagðist helst sjá lágan kassa, sem liti í fyrstu út eins og stór konfektkassi, sem yrði Sniglunum erfiður og eina vandanum myndi valda. Á þessum kassa væru einhverjar tölur sem virtust vera mjög breytilegar. En ástandið yrði erfiðara eftir því sem tölurnar væru hærri. Við fyrstu væri þetta eins og einhvurslax vísitölu kassi og fylgdi sömu reglu og neysluvísitalan en við nánari athugun þá væri þetta mun flóknara fyrirbrigði. Tauga -og rótarvandi áamt gráti og gnístran tanna virðist andlega tengdur þessum kassa. Völvan sagðist samt sjá að vandi þessi myndi að endingu opna kassann og þá kæmi í ljós að þetta væri alsaklaust verkfæri sem væri alveg laust við að vera andsetið að hinum vonda sjálfum eins og einhvur meðlimur hefur þráhaldið fram. Þegar Völvan var innt eftir fleiru tengt þessum hópi þá flissaði hún og sagðist sjá appelsínugula iðandi kös, Svan við sjó og flæðandi kampavín og mörg salatblöð ásamt óendanlega miklum hlátri. balanced-diet

hcg-diet-cartoon1


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband